Texti staðSamkvæmt 11.gr. laga um leikskóla skal vera starfrækt foreldraráð við skólann og að lágmarki skuli þrír foreldrar sitja í ráðinu. Árlega skal kjósa foreldraráð við leikskóla og skal leikskólastjóri hafa frumkvæði að kosningu í ráðið. Skal kosning til foreldraráðs fara fram í september á ári hverju og skal kosið til eins árs í senn. Foreldraráð setur sér starfsreglur. Leikskólastjóra ber að starfa með foreldraráði. Leikskólastjóri getur sótt um undanþágu til sveitarfélags um stofnun foreldraráðs ef gildar ástæður eru fyrir hendi, svo sem vegna fámennis í leikskóla.

Hlutverk foreldraráðs er að gefa umsagnir um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða starfsemi leikskólans. Þá skal ráðið fylgjast með framkvæmd skólanámskrár og annarra áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum. Foreldraráð hefur umsagnarrétt um allar meiri háttar breytingar á leikskólastarfi.gengils

© 2016 - Karellen